1. Kökurnar sem við setjum
Innskráningarkaka. Þegar þú skráir þig inn fær vafrinn þinn eina köku með handahófskenndum lykli sem segir okkur að það sért þú. Hún gildir í viku frá síðustu heimsókn, er aðeins send yfir dulritaða tengingu og er ekki lesanleg úr JavaScript. Hún hverfur þegar þú skráir þig út.
Innskráningarferli. Á meðan þú ert að skrá þig inn með Apple eða Google setjum við eina til tvær kökur í nokkrar mínútur til að tryggja að svarið sem kemur til baka sé frá sömu innskráningu og þú byrjaðir á. Þær eyðast um leið og innskráningunni lýkur.
Það er allt. Engar auglýsingakökur, engar rakningarkökur, engar kökur frá öðrum fyrirtækjum. Við vitum ekki hvaða aðrar síður þú skoðar og höfum engan áhuga á því.
2. Það sem vafrinn geymir fyrir þig
Nokkrir hlutir eru geymdir í vafranum þínum, ekki hjá okkur, svo þú tapir ekki vinnu eða þurfir ekki að velja það sama aftur: drög að auglýsingu sem þú ert að skrifa, hvort þú vilt markaðinn sem reiti eða lista, og merki um að þú hafir þegar skoðað tiltekna auglýsingu í þessari heimsókn, svo skoðanir séu ekki tvítaldar. Ekkert af þessu fer til okkar og þú getur hreinsað það í stillingum vafrans hvenær sem er.
3. Tölfræði án kaka
Við viljum vita hvort síðan sé hröð og hvaða síður eru skoðaðar. Til þess notum við Vercel Web Analytics og Speed Insights, sem telja heimsóknir án þess að setja köku eða geyma nokkuð í vafranum. Þú ert talin eða talinn einu sinni í hverri heimsókn út frá tölu sem er reiknuð á netþjóninum og hent í lok dags. Hún er ekki rakin yfir á aðrar síður og segir okkur ekki hver þú ert.
4. Þess vegna er enginn kökuborði
Lög um fjarskipti krefjast samþykkis fyrir kökum sem eru ekki nauðsynlegar fyrir þjónustuna sem þú baðst um. Innskráningarkakan er nauðsynleg til að halda þér innskráðum, og við setjum engar aðrar. Við þurfum því ekki að spyrja og gerum það ekki.
Ef þú vilt ekki innskráningarkökuna geturðu einfaldlega sleppt því að skrá þig inn. Allar auglýsingar eru sýnilegar án innskráningar.
5. Ef eitthvað breytist
Ef við bætum einhvern tímann við köku sem er ekki nauðsynleg, til dæmis fyrir greidda þjónustu, uppfærum við þessa síðu og spyrjum þig fyrst. Dagsetning síðustu breytingar er sýnd efst á síðunni.
Spurningar má senda á itorg@itorg.is.